Fyrirmyndar og fræðslufyrirtæki ársins 2026 hjá VR
Maven hlaut Fræðsluviðurkenningu og í hópi Fyrirmyndarfyrirtæki VR ársins 2026
Maven hlaut Fræðsluviðurkenningu ársins 2026 og í hópi Fyrirmyndarfyrirtæki VR ársins 2026 meðal lítilla fyrirtækja við hátíðlega athöfn í Hörpunni þann 13. maí 2026.
Fræðsluviðurkenning VR byggir á viðhorfi starfsfólks til sí- og endurmenntunarmála og getu þeirra til þess að þróast í starfi. Þessi viðurkenning styður við markmið VR um að hvetja til og efla símenntun hjá félagsfólki, enda telur félagið brýnt að samfélagið búi sig undir þær breytingar sem verða á vinnumarkaði á næstu árum og áratugum, ekki síst í tengslum við tækniframfarir á sviði gervigreindar.
Fimmtán efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki eru útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki 2026 og eru því 45 í heildina. Mörg þessara fyrirtækja eru ofarlega á lista ár eftir ár, hvernig sem gengur, sem ber vott um öfluga mannauðsstjórnun.
Frekari upplýsingar um Fyrirtæki ársins 2026 má finna á:
https://www.vr.is/kannanir/fyrirtaeki-arsins-2026/fyrirtaeki-arsins-2026/


