Maven hlýtur Netöryggisstyrk Eyvarar

Helgi Hrafn Halldórsson • 23. janúar 2026

Bætt netöryggi hjá Maven: Öruggar gagnaveitur og gagnavinnslur

Verkefnið er yfirgripsmikil öryggisuppbygging sem miðar að því að efla netöryggismenningu, innleiða skýra öryggisstefnu, styrkja gagnainnviði og lágmarka rekstraráhættu okkar og samstarfsaðila okkar. Verkefnið byggir á samþættri nálgun þar sem menntun, tækni, verkferlar og vöktun eru samræmd í heildstæðan öryggisramma. 


Maven þjónustar fjölbreytt fyrirtæki og stofnanir sem reiða sig á örugga gagnavinnslu. Þó Maven telst  ekki til mikilvægra innviða, en við vinnum daglega fyrir aðila sem gegna slíkum hlutverkum, þar á meðal Fjármála- og efnahagsráðuneytið og HS Orka. Þetta gerir netöryggi að lykilþætti í rekstri okkar. Með þesssu verkefni stefnum við að því að efla netöryggismenningu, innleiða skýra öryggisstefnu og lágmarka rekstraráhættu bæði hjá okkur og þeim sem treysta á þjónustu okkar. Verkefnið felur í sér innleiðingu stjórnkerfis netöryggis, yfirferð og herðingu öryggisstillinga og þjálfun starfsmanns sem leiðtoga í netöryggismálum. Með því að vinna með mikilvæg gögn og viðkvæmar upplýsingakeðjur krefst starfsemi okkar öflugra varnar- og vöktunarkerfa. Með markvissri þjálfun, skýrum verkferlum og styrkri öryggisvitund leggjum við grunn að öruggari stafrænum innviðum og traustari gagnaflutningi fyrir okkar viðskiptavini og íslenskt stafrænt atvinnulíf.


Nánar um úthlutun Netöryggisstyk Eyvarar er að finna á vef Rannís