Origo kaupir Maven
Origo kaupir Maven ehf. og eykur umsvif sín í gagna- og gervigreindarlausnum

Origo hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Maven ehf., sem sérhæfir sig í viðskiptagreind, gervigreindarlausnum og þróun snjallra mælaborða sem styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku viðskiptavina sinna. Maven hefur vaxið ört frá stofnun árið 2021 og er í dag leiðandi aðili á íslenskum markaði í uppbyggingu gagnainnviða og hagnýtingu gagna fyrir mörg af stærri fyrirtækjum og stofnunum landsins.
Kaupin eru liður í stefnu Origo um að efla enn frekar stöðu sína sem leiðandi samstarfsaðili á sviði gagna og gervigreindar, og styrkja getu félagsins til að aðstoða viðskiptavini við að umbreyta gögnum í raunverulegt virði með nýtingu nýjustu tækni og lausna.
Með kaupum á Maven eflum við þjónustuframboð Origo á sviði gagna og gervigreindar. Teymi Maven hefur byggt upp mikla sérþekkingu og reynslu á þessu sviði. Öflugir gagnainnviðir eru undirstaða fyrir hagnýtingu gervigreindar, þar sem öryggi gagna og traust þurfa að vera í forgrunni. Það er hlutverk Origo að vera í fararbroddi á þessu sviði á Íslandi. Við sjáum því mikinn styrk í að sameina krafta okkar og Maven, og bjóða viðskiptavinum enn öflugri lausnir.
Árni Geir Valgeirsson
forstjóri Origo
Með kaupunum bætir Origo við sig öflugu teymi sérfræðinga Maven með djúpa þekkingu á gagnavinnslu, gagnainnviðum og þróun greiningarlausna. Sameining félaganna skapar sterkari heild í þjónustu við viðskiptavini sem vilja nýta gögn og gervigreind til að bæta rekstur og auka samkeppnishæfni.

